þriðjudagur, október 17, 2006

Öllu snúið við

Þetta byrjaði allt á því að okkur var boðið sófasett.
Við byrjuðum að hugsa um hvernig best væri að raða í stofunni og ákváðum að snúa öllu við. Borðstofan þar sem sjónvarpskrókurinn var og sófinn þar sem borðstofan var. Það er ein kommóða á sama stað og hún var, annars er allt breytt. Við ákváðum svo reyndar að taka ekki sófasettið, heldur var vinnufélagi Sveins sem fékk það, í skýjunum glaður. Áður fannst okkur við vera með of mikið af húsgögnum í stofunni, en nú gætum við, svei mér þá, bætt við okkur einum fallegum hægindastól með skemli.
Það er stór kostur við allar breytingarnar að hver einasti hlutur var tekinn og þrifinn og allar bækurnar teknar úr bókaskápnum og hann þrifinn.

föstudagur, október 13, 2006

Atli er laus við gipsið!

Læknirinn skildi viljandi eftir smá ræmu undir handleggnum á Atla, þar sem ekki var gips svo ég gæti sjálf klippt umbúðirnar af eftir 2 vikur. Atla fannst gott að losna við það og geta loksins klórað sér almennilega. Honum finnst ennþá pínu vont að snúa mikið upp á handlegginn.